Stymmi spáir í spilin (
Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 17.umferð fari í Olís deild kvenna. Haukar – Fram (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar Stórleikur á miðvikudagskvöldi. Liðin jöfn að stigum bæði með 17 stig í fjórða og fimmta sæti deildinnar í baráttu um heimavallarrétt í 6 liða úrslitum. Haukar töpuðu gegn Val um helgina meðan Fram tóku Selfoss með fimmtán mörkum fyrir viku síðan. Leikir þessara liða hafa verið algjörir naglbítar í vetur og ég held að Haukar hafi betur í þessum leik. ÍR – Valur (Laugardagur 13:30) / Sigurvegari: Valur ÍR kom öllum á óvart í nóvember þegar þær unnu Val á heimavelli þeirra. Valskonur eru eflaust staðráðnar að hefna fyrir það tap og með Hafdísi í þessu formi í markinu held ég að það stoppi þær ekkert í að sækja þennan deildarmeistaratitil. Valur vinnur þennan. ÍBV – Stjarnan (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari: ÍBV Stjarnan á leið í erfiðan leik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. Stjarnan í mikilli fallbaráttu við Selfoss meðan ÍBV fylgja Val eins og skugginn og bíða eftir að þær misstígi sig til að eiga séns á deildarmeistaraitilinum. ÍBV vinna þennan leik örugglega. Selfoss – KA/Þór (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: KA/Þór Selfoss hefur ekki unnið leik í deildinni síðan þær unnu KA/Þór fyrir norðan fyrr í vetur. Þetta er leikur sem Selfoss verður að vinna ef þær ætla sér að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni í vetur. KA/Þór mun hinsvegar skemmar partýið og fara með stigin 2 aftur heim. 16.umferð (3 réttir)
15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.