Jökull Blöndal Björnsson (Sævar Jónasson)
ÍR tóku á móti Fram í 18.umferð Olís deildar karla í Skógarselinu í kvöld. Heimamenn eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og því mátti búast við að þeir myndu selja sig dýrt í leiknum. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var jafnt á nánast öllum tölum. Staðan var 13-13 þegar liðin gengu inn til hálfleiks en þá voru Fram ekki búnir að skora í heilar 7 mínútur. ÍR mættur dýrvitlausir til leiks í síðari hálfleik og voru komnir með sex marka forskot, 20-14, eftir um níu mínútna leik. Einar Jónsson þjálfari Fram setti þá Breka Hrafn markmann inná og það átti aldeilis eftir að reynast góð ákvörðun. Breki Hrafn setti í lás og þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum var Fram búið að jafna leikinn í 22-22. ÍR fór illa með tækifæri á lokamínútunni og klúðraði Baldur Fritz Bjarnason einmitt vítakasti í stöðunni 26-26 og 2 mínútur til leiksloka. Frammarar voru sterkari á lokamínútunni og unnu að lokum tveggja marka sigur, 26-28 og munu ÍR-ingar eflaust naga sig í handarbökin en þeir töpuðu lokakafla leiksins 6-14. Bernard Kristján Owusu Darkoh var markahæstur ÍR í kvöld með 10 mörk en hjá Fram var Rúnar Kárason markahæstur með 8 mörk. Breki Hrafn Árnason lauk leiknum með 9 varin skot eða 60% markvörslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.