Morgan Goði Garner (ÍBV handbolti)
Hetja ÍBV í sigri liðsins gegn Aftureldingu í 18.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi, markvörðurinn Morgan Goði Garner hefur framlengt samningi sínum við ÍBV út tímabilið 2027/2028. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgunsárið. Morgan Goði átti frábæra innkomu í lið ÍBV í leiknum í gær, varði 14 skot og endaði með 44% markvörslu í 32-29 sigri liðsins gegn Aftureldingu. ,,Morgan er uppalinn ÍBV-ari sem er að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki eftir að hafa farið í gegnum yngri flokka félagsins. Hann hefur sýnt stöðugar framfarir og mikinn metnað, og félagið bindur miklar vonir við hans framhald á næstu árum. Við erum gríðarlega ánægð með að halda Morgan innan raða félagsins og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun hans," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Morgan Goði sem er fæddur árið 2008 hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands en samherji hans hjá ÍBV, Sigurmundur Gísli Unnarsson sem er fæddur árið 2009 hefur hinsvegar verið í lokahópi íslenska drengja landsliðsins skipað leikmönnum fæddum 2008-2009. Eyjamenn eru því í góðum málum með markverði næstu árin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.