Ísak Logi Einarsson (Sævar Jónasson)
Ísak Logi Einarsson leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla ristarbrotnaði í janúar og hefur því ekkert leikið með Stjörnunni eftir áramót. Hann sagði í samtali við Handkastið að hann vonist til að geta leikið með Stjörnunni í síðustu leikjum liðsins í deildinni í mars en tvær umferðir eru eftir í febrúar áður en við tekur bikarúrslitahelgin. ,,Það er erfitt að segja til um það hvenær ég kem til baka. Miðað við batann síðustu daga þá erum við að stefna á að ég geti verið með í síðustu þremur leikjum deildarinnar," sagði Ísak Logi í samtali við Handkastið. Stjarnan hefur tapað fyrstu tveimur leikjum ársins eftir langa pásu í Olís-deildinni en liðið tekur á móti Haukum í 18.umferð Olís-deildarinnar í kvöld í Heklu-höllinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.