Stjarnan (Sævar Jónasson)
Í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins voru þjálfaramál íslensku liðanna í Olís-deildum karla og kvenna og Grill66-deildum karla og kvenna rædd. Meðal annars var rætt um þjálfarastöðu tveggja liða í Olís-deild karla, Stjörnuna og ÍR en óvissa ríkir um framtíð Hrannars Guðmundssonar þjálfara Stjörnunnar og Bjarna Fritzsonar þjálfara ÍR. Stymmi klippari var spurður að því hver væri að fara stýra karlaliði Stjörnunnar á næsta ári. ,,Ég hef ekki hugmynd. Það er eitthvað orðið stirrt sambandið milli mín og Stjörnunnar eftir allar þessar vendingar undanfarna mánuði. Við birtum grein um að það hafi verið samtal á milli Stjörnunnar og Aðalsteins Eyjólfssonar en samkvæmt okkar heimildum verður Alli áfram í Víking. Ég veit ekki hvort Hrannar verði áfram, hann er allavegana að renna út af samningi," sagði Stymmi klippari og benti á að staða Stjörnunnar í Olís-deildinni væri ekki að hjálpa stjórninni í þjálfaraleit sinni. ,,Það er örugglega ekkert rosalega freistandi fyrir komandi þjálfara að semja við Stjörnuna ekki vitandi hvort liðið verði í Olís-deildinni á næsta ári eða ekki. Það er ekkert langt niður í ÍR eins og staðan er núna." ,,Ég tel að Bjarni Fritzson hætti með ÍR, fyrst sonur hans er að fara til Kristianstad og þá sjái hann tækifæri til að fara annað hvort aftur í yngri flokka þjálfun en ég væri til í að sjá hann í Garðabænum. Ég held að allir hafi gott af því að fara í nýtt umhverfi." Arnar Daði velti því fyrir sér hvort það yrði jafnvel þjálfaraskipti og að Hrannar Guðmundsson gæti tekið við karlaliði ÍR í staðin. ,,Það er klárlega einhver möguleiki sem Stjarnan mun skoða en það er kannski ekki tímabært að spá í því núna,” bætti Davíð Már Kristinsson inn í umræðuna áður en Stymmi klippari hrifsaði af honum orðið. ,,Afhverju? Hvenær áttu að gera þetta? Stjórnin er væntanlega ekki að stýra liðinu þeir eiga bara að vera undirbúa næsta tímabil og ef þú ert of lengi að þessu þá brennur þú mögulega inni og endar ekki með neinn þjálfara. Ég var búinn að stinga upp á því að þeir ættu að heyra í Gumma Gumm. (Guðmund Þórð Guðmundsson). Kannski galið, en allt í lagi að athuga það. Þú veist aldrei hvernig hann er stemmdur fyrir þessu, hann er örugglega að leita sér að stærra giggi en þá færðu bara nei.” Stjarnan er í 9.sæti deildarinnar með 10 stig og fær Hauka í heimsókn í 18.umferð Olís-deildar karla í kvöld. Stjarnan er aðeins þremur stigum frá botnsæti deildarinnar en mikil og hörð botnbarátta er í Olís-deildinni milli fimm félaga sem öll geta fallið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.