Norðurlöndin: Elín Klara og Einar Bragi áfram á toppnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Klara Þorkelsdóttir (KERSTIN JOENSSON / AFP)

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í Svíþjóð í kvöld en Elín Klara Þorkelsdóttir hélt uppteknum hætti með liði sínu Sävehof en hún skoraði sex mörk úr níu skotum en þar af voru tvö mörk úr vítum þegar Sävehof vann góðan heimasigur á Höörs HK, 34-23 og styrktu um leið stöðu sína á toppi deildarinnar.

Karla megin styrktu Kristianstad stöðu sína á toppnum þegar þeir unnu Malmö á útivelli, 29-33 í stórleik umferðarinnar en þarna voru tvö efstu liðin að mætast en Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk úr sjö skotum og bætti við tveimur stoðsendingum og fékk að auki eina brottvísun.

Amo tapaði á heimavelli í kvöld gegn Önnereds, 27-32 þar sem Arnar Birkir Hálfdánsson hafði hægt um sig en hann skorað eitt mark úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar.

Að lokum unnu karlalið Sävehof rétt eins og kvennaliðið góðan heimasigur gegn GUIF, 31-22 en það var tvíhöfði í Partille Arena í kvöld. Birgir Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og var frábær að finna liðsfélagana með sjö stoðsendingar.

Úrslit kvöldsins:

Sävehof 34-23 Höörs HK

Malmö 29-33 Kristianstad

Amo 27-32 Önnereds

Sävehof 31-22 GUIF

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top