Haukur Ingi Hauksson (Sævar Jónasson)
HK tók á móti Þór Akureyri í 18.umferð Olísdeildar karla í Kórnum í kvöld. Liðin voru bæði í bullandi fallbaráttu fyrir leik kvöldsins svo um gífurlegan mikilvægan leik var um að ræða fyrir bæði liðin. HK hafði frumkvæðið í upphafi fyrri hálfleiks en Þórsarar voru snöggur að vinna sig aftur inn í leikinn og voru komnir yfir þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Liðin skiptust á að hafa forystuna og leiddi HK með einu marki, 20-19, þegar liðin gengu til hálfleiks. Þórsarar voru búnir að jafna leikinn eftir um 10 mínútur í síðari hálfleik en HK náði aftur frumkvæðinu í leiknum. Brynjar Vignir markmaður HK átti frábæran kafla um miðbik síðari hálfleiks og varði hvað eftir annað glæsilega frá Þórsurum í góðum færum og átti grunninn af því að HK ynni að lokum öruggan fimm marka sigur, 36-31. Haukur Ingi Hauksson var frábær fyrir HK í kvöld og skoraði 11 mörk en hjá Þór var Hafþór Már VIgnisson markahæstur með 8 mörk. Líkt og áður sagði átti Brynjar Vignir Sigurjónsson frábæran leik í marki HK og varði 14 skot eða 44% skota sem komu á hann. HK fjarlægist þar með botnbaráttunna og eru komnir í 8.sæti deildarinnar meðan Þór sitja ennþá í 11.sæti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.