Andreas Palicka (Wetzlar)
Þýska handknattleiksliðið HSG Wetzlar hefur styrkt sig verulega fyrir lokasprettinn í þýsku úrvalsdeildinni með því að fá til sín sænska landsliðsmarkvörðinn, AndreasPalicka. Markvörðurinn reynslumikli hefur skrifað undir samning út tímabilið og gæti þegar leikið sinn fyrsta leik um helgina fyrir botnlið þýsku úrvalsdeildarinnar. Þjálfari Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson en hann tók við liðinu í lok síðasta árs. Wetzlar er með sjö stig í 17.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og botnlið Leipzig. Þrjú stig er í Bergischer og fjögur stig er í Minden. Palicka, sem er 39 ára, samdi nýverið um starfslok hjá norska félaginu Kolstad og snýr nú aftur í þýsku deildina þar sem hann hefur áður notið mikillar velgengni. Á ferlinum lék hann í sjö ár með THW Kiel og í fimm og hálft ár með Rhein-Neckar Löwen. Wetzlar er því þriðja liðið sem hann leikur með í þýsku úrvalsdeildinni. Þá á hann einnig að baki tímabil hjá Álaborg, Paris Saint-Germain og uppeldisfélaginu Redbergslidsí Svíþjóð. Hjá Wetzlar er vonast til að sænski reynsluboltinn verði lykilmaður í baráttunni fyrir sæti sínu í efstu deild. Framkvæmdastjórinn Björn Seipp segir í tilkynningu að félagið sé bæði stolt og ánægt með að hafa tryggt sér krafta Palicka. „Alþjóðleg reynsla hans og hæfileikar hans inn á vellinum munu hjálpa okkur strax. Hann býr yfir þeirri fagmennsku sem við þurfum. Maður sér hann aldrei gefa minna en hundrað prósent,“ segir Seipp. Palicka sjálfur fer ekki í grafgötur með verkefnið fram undan. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn til HSG Wetzlar og aftur í Bundesliguna. Ég þakka fyrir traustið og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að tryggja að við höldum sæti okkar í deildinni,“ segir markvörðurinn sem var á sama tíma í morgun kynntur sem markvörður Fuchse Berlín frá og með næsta sumri. Palicka hefur þegar hafið æfingar með liðinu og gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Hannover-Burgdorf á morgun en sá leikur hefst klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.