Arnar og Reynir höfðu betur í Íslendingaslagnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnar Freyr Arnarsson (Balur Þorgilsson)

Þrír leikir voru á dagskrá í dag er 21.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram í Hannover er Hannover tók á móti Wetzlar í frumraun Palicka aftur í sterkustu deild heims. Hannover tók frumkvæðið snemma og hélt því til lok leiks þar sem Wetzlar voru aldrei langt á eftir þeim en gerðu aldrei almennileg áhlaup. Lokatölur 30-25 og hálfleikstölur 14-11. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Renars Uscins með 10 mörk.

Seinni leikur dagsins var er Melsungen tók á móti Ými Erni og félögum í Göppingen. Melsungen tók frumkvæðið í upphafi leiks og hélt því allt til enda. Sprettir Göppingen voru of fáir og komust einungis tær Göppingen manna að hælum Melsungen, lokatölur 31-23. Reynir Þór og Arnar Freyr komust ekki á blað en Ýmir skoraði 2 mörk.

Þriðji og seinasti leikur dagsins fór fram þegar Minden bauð Rhein-Neckar Löwen í heimsókn. Löwen hafði frumkvæði allan leikinn en Minden voru alltaf skammt frá með góðum áhlaupum og finni markvörslu frá Tibor Ivanisevic. Lokatölur 28-34. Haukur Þrastar skoraði 7 mörk og gaf 2 stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

Hannover Burgdorf- Wetzlar 30-25

Melsungen- Göppingen 31-23

Minden- Rhein-Neckar Löwen 28-34

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top