Jovan Kukobat (Egill Bjarni Friðjónsson)
Jovan Kukobat sneri aftur á völlinn í sigri HK gegn Þór á heimavelli í 18.umferð Olís-deildar karla á föstudagskvöldið. Um er að ræða fyrsta leik Kukobat á þessu tímabili en hann gekkst undir aðgerð á handlegg í sumar sem hefur haldið honum frá keppni. Kukobat kom við sögu undir lok leiks í lífsnauðsynlegum sigri HK gegn Þór og varði meðal annars vítakast frá Arnóri Þorra Þorsteinssyni á mikilvægum tímapunkti í leiknum. HK vann leikinn að lokum með fimm mörkum 36-31 en með sigrinum fór HK upp í 8.sæti deildarinnar með 12 stig, stigi meira en Selfoss sem er í 9.sætinu. Þór er áfram í 11.sætinu með 9 stig, stigi á eftir Stjörnunni og með tveimur stigum meira en ÍR þegar fjórar umferðir eru eftir. Jovan Kukobat gekk í raðir HK fyrir síðustu leiktíð frá Aftureldingu en hann hefur víða komið við á ferlinum en hann hefur meðal annars leikið með Víkingi, KA og Akureyri. Samningur Kukobat við HK rennur út eftir tímabilið og óvíst hvað tekur við hjá þessum reynslu mikla markverði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.