Magdeburg misstigu sig
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi Magnússon SC Magdeburg ((Marco Wolf / dpa Picture-Alliance via AFP)

Fjórir leikir voru á dagskrá í dag er 21.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram í Lemgo borg er Lemgo Lippe tók á móti Erlangan. Lemgo  tók frumkvæðið snemma og hélt því til lok leiks þar sem Erlangan voru aldrei langt á eftir þeim en gerðu aldrei almennileg áhlaup. Lokatölur 27-21. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Viggó Kristjánsson með 11 mörk.

Seinni leikur dagsins var er Füchse Berlin tók á móti Stuttgart í höfðuborginni. Leikurinn var jafn og spennndi framan af en stakk Berlínar liðið dálítið af í seinni hálfleik og sigraði með fimm mörkum 37-32. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Lasse Anderson með 8 mörk og 8 stoðsendingar.

Þriðji leikur dagsins fór fram þegar Hamburg bauð Flensburg í heimsókn. Flensburg hafði yfirhöndina fyrri part leiksins en á 35. mínutu gerðu Hamburg menn frábæran 6-0 kafla og var leikurinn allt í einu orðinn jafn og spennandi. Flensburg tók síðan yfirhöndina og unnu dýrmætan sigur. Lokatölur 35-38. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Pytlick með 9 mörk.

Fjórði og seinasti leikur dagsins var sannkallaður stórleikur umferðarinnar er THW Kiel bauð Magdeburg í heimsókn. Fyrri hálfleikur var jafn en hafði  Magdeburg yfirhöndina. Í seinni hálfleik tóku Kiel frumkvæðið snemma leiks sem endist allan leikinn og sigruðu þeir 31-29. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Lukas Zerbe með 9 mörk. 

Úrslit dagsins:

Lemgo-Erlangan 27-21

Füchse Berlin-Stuttgart 37-32

Hamburg-Flensburg 35-38

Kiel-Magdeburg 31-29

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top