Ísak Gústafsson (Baldur Þorgilsson)
Álaborg urðu í dag danskir bikarmeistarar þegar þeir unnu nokkuð öruggan og þægilegan sigur á Íslendingaliði Ringsted. Lokatölur urðu 34-24 fyrir dönsku meistarana sem einfaldlega ráða lögum og lofum yfir dönskum handbolta þessa stundina en þeir hafa ekki tapað stigi í deildinni það sem af er og þeir kláruðu bikarinn nokkuð örugglega. Þeir voru að verja titilinn en þeir unnu bikarinn einnig í fyrra og er þetta í fjórða sinn sem liðið verður bikarmeistari en úrslitahelgin fór fram í Jyske Bank Boxen þar sem Íslenska landsliðið lék undanúrslitaleik sinn og bronsleikinn á EM í janúar. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Ringsted og gaf tvær stoðsendingar á meðan Ísak Gústafsson átti erfitt uppdráttar og klikkaði öllum sex skotum sínum í dag en gaf hinsvegar þrjár stoðsendingar. Þungt tap fyrir Íslendingana en frábært afrek hjá liðinu að komast í úrslit í fyrsta sinn. Að venju var spilað upp á þriðja sætið en þar voru það GOG sem unnu lið Sønderjyske, 34-29. Úrslit dagsins: Aalborg 34-24 Ringsted GOG 34-29 Sønderjyske

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.