Róbert Orri Arason (Stjarnan)
Róbert Orri Arason hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Róbert Orri sem er fæddur árið 2009 er ungur og efnilegur leikmaður uppalinn í Stjörnunni en hann hefur verið að fá hlutverk með meistaraflokki Stjörnunnar í Olís-deildinni eftir áramót. ,,Hann er uppalinn innan okkar raða og hefur vaxið jafnt og þétt með hverju árinu. Eins og fram hefur komið þá þykir okkur það sérstaklega ánægjulegt að sjá leikmann úr okkar eigin yngri flokkum brjóta sér leið í gegn og spila svo með meistaraflokki félagsins," segir í tilkynningu Stjörnunnar í dag. Róbert Orri hefur tekið þátt í átta leikjum með Stjörnunni í Olís-deildinni í vetur og byrjaði meðal annars inná gegn Selfossi á dögunum en Stjörnuliðið er í 10.sæti deildarinnar með 10 stig og hefur tapað sjö leikjum í röð í Olís-deildinni. Róbert Orri er annar leikmaðurinn sem hefur samið við Stjörnuna á dögunum en Dagur Máni Siggeirsson jafnaldri hans skrifaði einnig undir tveggja ára samning við Stjörnuna á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.