Þór - Afturelding (Egill Bjarni Friðjónsson)
Afturelding hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum í Olís-deild karla það sem af er ári en liðið fær vængbrotna Stjörnumenn í heimsókn til sín í næstu umferð deildarinnar. Rætt var um gengi Aftureldingar og framhaldið hjá liðinu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Taflan er loksins farin að leiðrétta sig aðeins," sagði Stymmi klippari en Afturelding á Stjörnuna, FH, Þór og Selfoss eftir í Olís-deildinni og var Davíð Már Kristinsson sem var gestur í þættinum spurður að því hvort hann sjái þarna örugg sex stig fyrir Mosfellinga. ,,Ég veit það ekki, þeir vinna allavegana Stjörnuna næst. Það er ekki endalaust hægt að tína kanínur upp úr hattinum. Stigasöfnun var fáránleg fyrir áramót en Ágúst Ingi er frá og Oscar Lykke að drepast í bakinu. Þeir yrðu ánægðir að ná heimavallarétti en það er hinsvegar stutt niður í sætin fyrir neðan þá.” ,,Allt undir sex stigum úr þeim leikjum sem þeir eiga eftir væri vonbrigði," bætti Klipparinn við. Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn, þáttastjórnandi Handkastsins sagði sína skoðun að lokum um Aftureldingu og virtist ekkert vera alltof bjartsýnn fyrir stigasöfnun Aftureldingar í loka leikjum liðsins. ,,Ég er meira að hugsa hvort Afturelding endi í sjötta sæti og KA fari upp fyrir þá. Deildin er það jöfn, þú horfir á Afturelding - Selfoss og hugsar að Afturelding takið það auðveldlega. Selfoss er hinsvegar bara að gefa öllum liðum leik. Ég er meira á því að taflan leiðrétti sig enn meira og Afturelding endi í 6.sæti.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.