Enn eitt tap lærisveina Arnórs Þórs
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bergischer HC (SVEN SIMON / dpa Picture-Alliance via AFP)

Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer þurftu að sætta sig við tveggja marka tap á Eisenach á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 33-31. Um var að ræða lokaleikinn í 21.umferð deildarinnar.

Um er að ræða fjórða tap Bergischer í deildinni í röð en Eisenach hóf leikinn af miklum krafti og komust snemma í 7-2. Staðan í hálfleik var 21-13 en Eisenach náði mest tíu marka forystu í fyrri hálfleiknum í stöðunni 19-9.

Bergischer mættu hinsvegar ákveðnari til leiks í seinni hálfleiknum og náðu að minnka muninn í tvö mörk undir lok leiks. Bergischer er áfram í mikilli fallbaráttu en liðið er í 16.sæti deildarinnar með þremur stigum meira en Leipzig og Wetzlar sem eru í fallsætunum.

Wetzlar og Leipzig mætast í næstu umferð á föstudagskvöldið í mikilvægum fallbaráttuslag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top