Bennet Wiegert (FRANK MOLTER / dpa Picture-Alliance via AFP)
Eftir 20 leiki án sigurs, 18 sigurleiki og tvö jafntefli tapaði Magdeburg sínum fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni frá 21. mars á síðasta ári gegn Kiel í gær. Síðasti tapleikur Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni fyrir leikinn í gær var gegn Fuchse Berlín á heimavelli 30-33 21.mars árið 2025. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og Ómar Ingi Magnússon fjögur í tapi liðsins gegn Kiel á útivelli í gær, 31-29 en liðið er samt sem áður áfram með góða forystu á toppi deildarinnar. Rætt var um tapið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Er þjálfarinn hjá Magdeburg í einhverju veðmáli með hárið á sér og skeggið á sér? Er eitthvað vita með það?" velti Stymmi klippari fyrir sér og bætti við að hann hafi verið eins og villimaður á bekknum í gær. ,,Hann rakar sig sennilega núna eftir þetta tap. Hann rakar sig þegar hann tapar og hárið á honum er eins og hann hafi aldrei farið í klippingu. Það gæti verið að við sjáum ný rakaðan Bennet Wiegert á hliðarlínunni í vikunni," svaraði Kristinn Björgúlfsson sem var gestur Handkastsins. Bennet Wiegert verður á hliðarlínunni í vikunni þegar Meistaradeildin fer aftur af stað en Magdeburg fær GOG í heimsókn á miðvikudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.