Tandri stefnir á endurkomu í mars
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tandri Már Konráðsson (Dragomir Ovidiu)

Tandri Már Konráðsson fyrirliði Stjörnunnar í Olís-deild karla segist stefna á endurkomu á völlinn í síðustu leikjum Stjörnunnar á tímabilinu en hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í forkeppni Evrópudeildarinnar í Rúmeníu fyrir tímabilið.

Stjarnan mætti þar rúmenska liðinu Baia Mare í tveimur leikjum en féll úr keppni eftir vítakastkeppni. Tandri Már sleit hásin í fyrri leik liðanna sem fram fór í upphafi tímabils.

Rúmlega fimm mánuðir er síðan Tandri gekkst undir aðgerð eftir hásina slitin en er allur að koma til. Hann sagði í samtali við Handkastið að endurhæfingin hafi gengið vel og það líti út fyrir það í dag að hann geti mögulega spilað með Stjörnunni í lokaleikjum tímabilsins í mars.

Ein umferð er eftir í Olís-deild karla í febrúar en við tekur bikarúrslitin í Powerade-bikarnum. Þrjár umferðir eru síðan leiknar á einni viku í mars.

Stjarnan fær KA í heimsókn föstudaginn 6.mars, á mánudeginum fer Stjarnan síðan í Skógarselið og mætir þar ÍR áður en liðið fær Íslands- og bikarmeistarana í Fram í heimsókn, fimmtudaginn 12.mars.

Það yrði mikil hvalreki fyrir lið Stjörnunnar að fá endurheimta fyrirliðann sinn til baka en liðið er í harðri baráttu bæði um laust sæti í úrslitakeppninni sem og í mikilli fallbaráttu en mikil spenna er í neðri hluta deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top