Þriðji markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar seldur til Póllands
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Frederik Bjerre (Javier Borrego / Spain DPPI / DPPI via AFP)

Samkvæmt heimildum Handkastsins er vinstri hornamaðurinn, Frederik Bjerre sem slegið hefur í gegn með GOG á þessu tímabili hefur verið seldur til pólska liðsins, Wisla Plock. Félagið greindi frá því að GOG hafi selt leikmanninn til stórliðs í Evrópu en hvergi kom þó fram hvert hann væri að fara.

Bjerre gekk í raðir GOG fyrir tímabilið eftir tvö tímabil hjá Tvis-Holstebro þar sem Arnór Atlason þjálfaði hann á síðustu leiktíð hjá Holstebro. Eftir frábæra frammistöðu með GOG hefur félagið tilkynnt að hann hafi verið seldur til Wisla Plock.

Kasper Jørgensen framkvæmdastjóri GOG segir söluna sanna það enn og aftur stöðu félagsins í því að þróa leikmenn og selja þá til stærstu félaga í Evrópu. ,,Við höfum átt mjög góð samskipti við Bjerre og þegar hann kom til okkar fyrir tímabilið vissum við af miklum áhuga hans á að leika erlendis," sagði framkvæmdastjóri GOG.

Þrátt fyrir að Bjerre hafi verið samningsbundinn GOG til ársins 2027 mun hann yfirgefa félagið strax eftir þessa leiktíð.

Frederik Bjerre er þriðji markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á tímabilinu með 78 mörk en einungis Elohim Prandi og Mathias Gidsel hafa skorað fleiri mörk en hann.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top