Fannst 8-liða úrslitin vera hálfgert drasl
{{brizy_dc_image_alt entityId=

FramFram (Kristinn Steinn Traustason)

Undirritaður birti grein hér á Handkastinu í síðustu viku þar ég velti því fyrir mér hvort það væri kominn tími á að breyta fyrirkomulaginu á úrslitakeppninni í Olís-deild karla. Greinina er hægt að lesa hér.

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann var spurður út í greinina og þær hugmyndir að breyta fyrirkomulaginu í úrslitakeppninni og fara svokallaða dönsku leið þar sem efstu átta liðin í Olís-deild karla myndu leika í tveimur fjögurra liða riðlum þar sem spiluð er tvöföld umferð áður en farið er í undanúrslit.

,,Þú sendir mér þessa frétt og ég gluggaði aðeins í þetta. Ég hef sjálfur spilað í Danmörku og þeir prófuðu margar útgáfur og sem leikmaður var maður kannski ekkert alltaf ánægður með að það var verið að breyta úrslitakeppninni. En ég hef smá skilning fyrir því núna. Þú þarft að finna einhvern flöt á þessu sem virkar."

Mótið er of stutt og of fáir leikir

,,Mér finnst og mér fannst þegar ég þjálfaði í deildinni hér heima 8-liða úrslitin vera hálfgert drasl og mér finnst ekki rétt að það sé nóg að vinna tvo leiki til að fara áfram. Ég skil alveg að þetta er möguleikinn fyrir eitthvað óvænt en betri liðin eru undir smá pressu fyrir fyrsta leik og það er einhver sjarmi yfir því en ég held að það sé of fáir leikmenn sem spila marga alvöru leiki hérna heima," sagði Snorri Steinn sem þjálfaði lið Vals hér heima áður en hann tók við íslenska landsliðinu.

Snorri þekkir það bæði að fara alla leið í úrslitakeppninni og tapa 2-0 í 8-liða úrslitum.

,,Að spila einhverja tvo leiki í 8-liða úrslitum yfir heilt tímabil sem eru þá innan gæsalappa stærstu leikirnir hjá þeim er ekkert rosalega mikið. Ég er alveg hrifinn að splitta þessu upp í tvo fjögurra liða riðla og reyna þannig að fjölga þessum mikilvægu leikjum. Ég er ekkert viss um að aðsóknin verði eitthvað miklu betri en hún er líka ekkert alltaf frábær í 8-liða úrslitunum þannig við erum ekkert að missa neitt þar held ég. Síðan er það félagana að gera eitthvað í kringum þessa leiki. Það getur klárlega eitthvað óvænt komið upp og aukin spenna myndast, ég er hlynntur þessu og ég held að mótið sé of stutt og það eru of fáir leikir."

,,Það er miklu heilbrigðara að fara alla leið, það er miklu eðlilegra að spila inn í miðjan maí. Mér fannst þetta miklu auðveldara þjálfræðilega séð. Þó svo að menn verði þreyttir að fara alla leið í úrslitakeppninni sem tekur langan tíma en þetta drepur ekkert menn, alls ekki."

Viðmið með líkamlega þáttinn er ekki nægilega hár

Snorri bendir síðan á það að þau félög sem fara fyrr í sumarfrí ár eftir ár virðast ekki vera nýta tímann nægilega vel þegar í sumarfríið er komið.

,,Það er eitt sem er athyglisvert. Ég ætla ekkert að fullyrða neitt en í núverandi fyrirkomulagi, þá held ég að líkamlegt atgervi þeirra liða sem fara fyrst í frí sé miklu betra heldur en hinna. Það er líka umhugsunarefni því við erum oft að tala um líkamlegan þátt bæði karla og kvennamegin. Þegar mótið er ekki lengra en 6-7 mánuði þá er mjög skrítið að þau lið séu ekki í lang besta forminu. Við getum líka farið að velta því upp finnst mér. Ég upplifi hluti og sé hluti eftir að hafa tekið við landsliðinu hvað viðmiðið með líkamlega þáttinn er ekki nægilega hár hérna heima, ef ég orða þetta bara pent. Við þurfum að hækka ránna hvað þetta varðar."

,,En ég er alveg hlynntur því að skoða það og taka einhverja umræðu um það hvernig fyrirkomulagið á að vera í úrslitakeppninni," sagði Snorri Steinn að lokum.

Nú er bara spurning hvort og þá hvaða félag tekur þessa hugmynd upp og leggur hana til á ársþingi HSÍ sem fram fer á næstu vikum en ekki liggur enn ljóst fyrir hvenær ársþing HSÍ fer fram.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top