Hinrik Hugi Heiðarsson (Sævar Jónasson)
Línumaðurinn Hinrik Hugi Heiðarsson hefur framlengt samningi sínum við ÍBV í Olís-deild karla og verður í Eyjum út tímabilið 2027/2028. Hinrik Hugi er uppalinn í Eyjum en lék um tíma með Haukum í fyrra á láni frá ÍBV. Hann hefur hinsvegar verið í stærra hlutverki hjá ÍBV liðinu í vetur í Olís-deildinni og stimplað sig inn sem einn öflugasta línumann deildarinnar. ,,Hinrik Hugi er öflugur línumaður sem leggur sig allan fram í hvert einasta skipti sem hann stígur inn á völlinn. Með baráttuanda, krafti og vinnusemi er hann mikilvægur hlekkur í liðinu og lykilmaður í framtíðarsýn félagsins," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Hinrik Hugi hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur en Eyjamenn vonast til að hann sé að verða góður og getið leikið með liðinu á endasprettinum í Olís-deildinni en ÍBV er í 4.sæti deildarinnar með 23 stig, jafn mörg stig og Afturelding sem er í 5.sætinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.