Líkir Haukunum við hestinn – Gera ekki meira en þeir þurfa
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ólafur Brim Stefánsson, Adam Haukur Baumruk (Sævar Jónasson)

Haukar unnu torsóttan sigur á útivelli gegn Stjörnunni í 18.umferð Olís-deildar karla á föstudagskvöldið 25-27 eftir að hafa verið 13-11 yfir í hálfleik. Margir bjuggust við sannfærandi sigri Hauka í leiknum enda Haukar í baráttu um deildarmeistaratitilinn á meðan Stjarnan er í frjálsu falli í 10.sæti deildarinnar.

Rætt var um sigur Hauka í nýjasta þætti Handkastsins og frammistöðu Hauka í leiknum gegn Stjörnunni sem var ekki mikið fyrir augað.

 ,,Haukarnir gerðu sér þetta eins erfitt fyrir og hægt var. Ég var að horfa á leikinn í Handboltapassanum og mér fannst orkustigið og levelið í vörninni hjá Haukum vera djók. Stjarnan var að finna Jóel á línunni aftur og aftur og aftur. Síðan var Stjarnan að opna fyrir hægri skyttuna og leikmenn Hauka horfðu bara á hvorn annan og kenna hvor öðrum um þetta. Grétar Ari í markinu klukkaði varla bolta og kannski enginn greiði gerður með enga vörn fyrir framan sig," sagði Stymi klippari og bætti við:

,,Þegar Haukar tóku leikhlé í stöðunni 26-25 þá hugsaði ég hvort Haukar væru í alvörunni að fara klúðra þessu.”

Kristinn Björgúlfsson var gestur í Handkastinu og benti á að Gunnar Magnússon þjálfari Hauka hafi margoft minnst á þetta í viðtölum eftir leiki Hauka í vetur.

,,Er þetta ekki bara svolítið þannig að Haukar hoppa ekki hærra en þeir þurfa eins og hesturinn? Hann hoppar ekkert hærra en hann þarf. Ég hef nefnt þetta annað slagið hér í vetur að Gunni Magg hefur nefnt það í viðtölum að hann veit aldrei almennilega hvað hann fær frá liðinu sínu. Annað hvort eru þeir sturlaðir og síðan detta þeir niður á þetta plan."

Haukar og FH mætast í 19.umferð Olís-deildar karla í nágrannaslag í kvöld en FH hafði betur í fyrri umferðinni í Kaplakrika og eiga Haukar því harma að hefna.

Frekari umræða um leik Stjörnunnar og Hauka má hlusta á, í uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top