Freyr Aronsson (Sævar Jónasson)
19.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Í Mosfellsbæ tekur Afturelding á móti Stjörnunni en bæði lið eru án stiga eftir fyrstu þrjá leikina á þessu ári. Leikurinn í Mosó hefst klukkan 19:00. Í Hafnarfirðinum er síðan stórleikur þegar Haukar og FH mætast í nágrannaslag klukkan 19:30. Sá leikur er sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Umferðin heldur síðan áfram með tveimur leikjum annað kvöld, einum leik á laugardag og á sunnudaginn lýkur umferðin með leik KA og ÍBV í KA-heimilinu klukkan 14:45. Handkastið hefur tekið saman 10 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir 18 umferðir:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.