Einar Baldvin Baldvinsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Rætt var um frammistöðu Einars Baldvins Baldvinssonar markvarðar Aftureldingar í fyrstu þremur leikjum liðsins eftir áramót en Afturelding hefur tapað öllum þremur leikjum sínum á nýju ári. Liðið fær Stjörnuna í heimsókn í 19.umferð Olís-deildarinnar í kvöld. ,,Hann kom vörninni oft í gang fyrir áramót með því að byrja að verja dauðafæri. Þá kom barátta og trú í vörnina í framhaldinu. Maður saknar þess svolítið. Hann þurfti ekki alltaf góða vörn til þess að verja fyrir áramót,“ sagði Ásbjörn Friðriksson sem var gestur í Handboltahöllinni síðasta mánudagskvöld en Handboltahöllin er sýnd öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Einar Baldvin æfði með íslenska landsliðinu í aðdraganda Evrópumótsins eftir frábæra frammistöðu í Olís-deildinni fyrir áramót en hann ásamt Aftureldingar liðinu hefur ekki fundið sig í fyrstu þremur leikjum ársins. Eftir fjóra sigurleiki í röð fyrir áramót hefur liðið nú tapað gegn Fram, Val og nú síðast ÍBV í Eyjum. Afturelding mætir Stjörnunni klukkan 19:00 en Stjarnan hefur tapað sjö leikjum í röð og einungis unnið einn af síðustu tólf leikjum en það var níu marka sigur gegn Íslands- og bikarmeisturum Fram 21. nóvember. Umræðuna um Einar Baldvin í Handboltahöllinni er hægt að sjá hér að ofan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.