Stymmi spáir í spilin: 18. umferð Olísdeildar kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stymmi spáir í spilin (

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 18.umferð fari í Olís deild kvenna.

KA/Þór – Haukar (Fimmtudagur 19:00)  /  Sigurvegari: Haukar

KA/Þór tryggði sæti sitt í deildinni í síðustu umferð og fara rólegar inn í þennan leik. Þær fara ekki lægra en gætu mögulega reynt að klífa töfluna þar sem það eru einungis 2 stig upp í Fram. Haukar munu hins mæta norður og sigra þennan leik og styrkja stöðu sína í 3.sæti deildinnar og því allar líkur á að þessi lið gætu mæst í úrslitakeppninni.

ÍBV – Selfoss (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

ÍBV hefur liðið vel gegn Selfoss í ár og það verður engin breyting á laugardaginn. ÍBV mun vinna þennan leik örugglega.

Fram – ÍR (Laugardagur 14:30)  /  Sigurvegari: Fram

Stórleikur umferðinnar að mínu mati. Barátta um 4.sæti deildinnar og heimavallarrétt í 6 liða úrslitum. ÍR voru óheppnar að ná ekki stigi gegn Val í síðustu umferð meðan Fram tapaði illa gegn Haukum. Ég held að heimavöllurinn skili sigri á laugardaginn.

Stjarnan – Valur (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: Valur

Stjarnan voru nálægt því að stela stigi í Eyjum um síðustu helgi meðan Valur komast í hann krappann gegn ÍR. Það styttist í Final4 og Valskonur eflaust konar með hugann við að ná leikmönnum góðum fyrir þá helgi. Það mun þá ekki koma að sök gegn Stjörnunni um helgina og þær vinna og færast nær deildarmeistaratitlinum.

17.umferð (4.réttir)
16.umferð (3 réttir)
15.umferð (4 réttir)
14.umferð (4 réttir)
13.umferð (4 réttir)
12.umferð (3 réttir)
11.umferð (3 réttir)
10.umferð (3 réttir)
9.umferð (2 réttir)
8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top