Þór fær íþróttahús sem tekið verið í notkun 2031
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jón Ólafur Þorsteinsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Í dag samþykkti bæjarráð Akureyrar samkomulag um uppbyggingu á langþráðri íþróttamiðstöð fyrir Íþróttafélagið Þór á félagssvæðinu í Glerárhverfi á Akureyri. Með undirrituðu samkomulagi er fullvíst að draumur Þórsara um eigin íþróttahús er loksins að verða veruleiki, og stefnt er að því að það verði tekið í notkun árið 2031. 

Það er Akureyri.net sem greinir frá.

,,Iðkendur hjá Þór stunda í dag æfingar á fimm stöðum í bænum utan félagssvæðisins. Í minnisblaði um verkefnið kemur fram að félagið búi við þá sérstöðu að 45% af iðkendum á aldrinum 5 til 19 ára geti ekki sótt æfingar á Þórssvæðinu," segir í frétt Akureyri.net

Íþróttahúsið sjálft verður ekki smásmíði:

  • Gólfflötur verður á bilinu 2.300–2.500 m², sem dugar fyrir 2 fulla handboltavelli. 
  • Aðstaða fyrir allar deildir Þórs — Gert er ráð fyrir samkomusali, skrifstofum og fundarrými í húsnæðinu
  • Hægt verður að halda viðburði, tónleika og mót. Ekki einungis íþróttaviðburði. 
  • Húsið tengist félagsheimilinu Hamri og áhorfendastúkunni við Þórsvöll.
  • Í íþróttasalnum verða áhorfendabekkir og öll aðstaða eins og best verður á kosið fyrir leiki í efstu deild í meistaraflokki í körfubolta og handbolta, sem og mótahald yngri flokka.

Áætlað er að verkið kosti um 3–4,5 milljarða króna (verðlag janúar 2026). 

„Áframhaldandi uppbyggingu öflugrar íþróttaaðstöðu á félagssvæði Þórs tryggir hagkvæmari nýtingu innviða og skapar mikilvægan vettvang fyrir fjölbreytta íþróttaiðkun og heimili fyrir félagið þegar horft er til langs tíma,“ segir í minnisblaði Akureyrarbæjar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top