Lemgo styrkir sig fyrir komandi tímabil
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Levin Wanner (Lemgo)

TBV Lemgo Lippe hefur samið við svissneska landsliðsmanninn Levin Wanner. Hann er 25 ára hægra hornarmaður sem kemur til félagsins frá BSV Bern. Samningurinn gildir til ársins 2028.

Wanner er uppalinn í Sviss og hefur spilað þar allan sinn feril til þessa. Hann byrjaði hjá Kadatten Schaffhausen, síðan færði hann sig um set og gekk til liðs við HC Kriens-Luzern þar til hann fór til BSV Bern.

Hann hefur leikið með svissneska landsliðinu og fengið dýrmæta reynslu á stórmótum. Hann lék á evrópumeistaramótinu í janúar þar sem hann lék tvo leiki og skoraði eitt mark. Með komu hans fær Lemgo öflugan leikmann á besta aldri sem mun styrkja liðið fyrir komandi tímabil.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top