Liggur leið Jóns Ásgeirs á Hlíðarenda?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jón Ásgeir Eyjólfsson (Dragomir Ovidiu)

Samkvæmt heimildum Handkastsins bendir allt til þess að línumaður Stjörnunnar, Jón Ásgeir Eyjólfsson leiki með Val í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Jón Ásgeir verður samningslaus eftir tímabilið og hefur ekki framlengt samningi sínum við Stjörnuna.

Valsmenn hafa lengi haft áhuga að fá Jón Ásgeir til sín. Er Jóni Ásgeiri ætlað að fylla skarð Þorvalds Arnar Þorvaldssonar línumanns Vals sem er með samningstilboð frá Póllandi. 

Jón Ásgeir sem er fæddur árið 2002 og uppalinn í Stjörnunni hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar undanfarin ár bæði varnar og sóknarlega. Einhver orðrómur er uppi um það að Jón Ásgeir sé nú þegar búinn að ná munnlegu samkomulagi við Val en hann sé enn opinn fyrir því að reyna fyrir sér erlendis á næstu leiktíð. Leiki hann á Íslandi verði það með Val.

Á dögunum var tilkynnt að Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar myndi yfirgefa liðið VfL Lübeck-Schwartau.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top