Þórður Magnús framlengir á Seltjarnarnesi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þórður Magnús  (Grótta

Markvörðurinn Þórður Magnús Árnason hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til tveggja ára eða til loka tímabilsins 2028. Þórður Magnús er 19 ára gamall og uppalinn hjá félaginu.

Þórður Magnús var í 3. flokki í fyrra sem endaði í 2.sæti á Íslandsmótinu á síðustu leiktíð. Liðið varð ennfremur bikarmeistari þar sem Þórður Magnús varði eins og berserkur.

Þórður Magnús hefur myndað öflugt markmannsteymi með Hannesi Pétri Haukssyni í meistaraflokki í vetur. Hann er talinn framtíðarleikmaður hjá félaginu og eru miklar vonir bundnar við hann í herbúðum Gróttu á næstu árum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top