SG Flensburg-Handewitt - Montpellier HB (Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)
Áhorfandi á Evrópudeildarleik Flensburg og Montpellier í Þýskalandi í kvöld lést. Þetta staðfestir Flensburg á samfélagsmiðlum sínum eftir leikinn en Flensburg hafði betur í leiknum 40-35 eftir að hafa verið 21-20 yfir í hálfleik. ,,Það er með miklum trega sem við þurfum að tilkynna að upp kom neyðarástand á heimaleik okkar í Evrópudeildinni í kvöld gegn Montpellier. Því miður báru allar aðgerðir sem gripið var til ekki árangur," segir í tilkynningunni frá Flensburg í kvöld. „Hugur okkar eru hjá fjölskyldu og vinum hins látna á þessum erfiðu stundum. Handbolti og allt sem tengist íþróttum víkur í dag,“ er haft eftir framkvæmdastjóra Flensburg Holger Glandorf.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.