Vonast til að sjá 2000 manns á Hafnarfjarðarslagnum
J.L.Long)

Miðasala á undanúrslitaleikina í Powerade-bikar karla og kvenna er farin af stað en undanúrslitin hjá stelpunum fara fram annað kvöld og strákarnir leika síðan á fimmtudagskvöldið.

Á fimmtudagskvöldið fer tvímælalaust fram áhugaverðasti leikur undanúrslitanna þegar Haukar og FH mætast alvöru Hafnarfjarðarslag. Sömu lið mættust á sama stað í síðustu viku þar sem FH hafði betur. Benedikt Grétarsson var gestur í uppgjörsþætti Handkastsins eftir síðustu umferð þar sem hann viðurkenndi að hafa orðið fyrir vonbrigðum með stemninguna og mætinguna á deildarleikinn.

,,Ég er orðinn svo spilltur af þessum Hafnarfjarðarslögum að ég hefði viljað sá aðeins meiri stemningu fyrir leik og betri mætingu. Það getur vel verið að þetta hafi litast á undanúrslitaleiknum sem framundan er og síðan var vetrarfrí í grunnskólum," sagði Benedikt og hélt áfram.

,,Ég ætla vona að við sjáum 2000 manns á Ásvöllum á fimmtudaginn og ég vona að bæði lið fari að kveikja á stemingunni fyrir þessum leik. Þetta getur verið, eins og klisjan segir áttundi maðurinn.”

,,Ég hef engar áhyggjur, það verður hörku mæting og alvöru stemning í Hafnarfjarðarslagnum," bætti Davíð Már Kristinsson við sem segist hafa vonast til að fá þennan leik í úrslitum en hafi ekki orðið að ósk sinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top