Talant Dujshebaev (Julien Kammerer / DPPI via AFP)
Talið er líklegt að Talant Dujshebaev þjálfari pólska stórliðsins Kielce taki við sem þjálfari franska landsliðsins og verður þetta kynnt á blaðamannafundi sem franska sambandið heldur í dag. Er gert ráð fyrir að Talant taki við liðinu af Guillaume Gille sem hefur stýrt liðinu frá 2020 en Gille var áður aðstoðarlandsliðsþjálfari franska landsliðsins á árunum 2016-2020. Þessi tíðindi eru talin afar óvænt þar sem franska sambandið hefur ávallt lagt það í vana sinn að vera með landsliðsþjálfara í 100% starfi en Talant Dujshebaev er á samning við Kielce og samkvæmt heimildum Handkastsins er gert ráð fyrir að hann verði áfram við stjórnvölinn í Póllandi. Árangur franska landsliðsins á Evrópumótinu í janúar olli stjórnarmönnum franska sambandsins vonbrigðum en liðið komst ekki uppúr milliriðlum keppninnar en Frakkland endaði í 4.sæti milliriðilsins á eftir Danmörku, Þýskalandi og Portúgal. Talant hefur stýrt Kielce frá árinu 2014 en hann var landsliðsþjálfari Ungverjalands á árunum 2014-2016 og þjálfari pólska landsliðsins 2016-2017. Nú er hinsvegar gert ráð fyrir að hann sé að taka við franska landsliðinu sem verður því hans þriðja landslið á þjálfaraferlinum. Dujshebaev verður 58 ára í lok júní á þessu ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.