Evrópudeildin: Reynir Þór stórkostlegur og önnur úrslit kvöldsins.
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Reynir Þór Stefánsson (Kristinn Steinn Traustason)

8 leikir fóru fram í annarri umferð milliriðlakeppni í Evrópudeildinni í kvöld og áttum við Íslendingar 7 fulltrúa í eldlínunni.

Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í Elverum töpuðu 32-25 í heimsókn sinni til Skanderborg sem Kristján Örn Kristjánsson spilar með en hann var ekki með í kvöld vegna meiðsla. Tryggvi skoraði einu sinni í leiknum.

Stiven Tobar Valencia og félagar í Benfica unnu 38-34 sigur á Einari Braga Aðalsteinssyni og félögum í Kristianstad. Stiven skoraði þrisvar og Einar Bragi skoraði 2 mörk í kvöld.

Lærisveinar Heiðmars Felixsonar í Hannover höfðu betur gegn Óðni Þór Ríkharðssyni og liðsfélögum hans í Kadetten Schaffhausen í Sviss í kvöld, 24-36. Óðinn Þór var sem svo oft áður markahæstur í liði Kadetten með 8 mörk.

Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur í 27-29 sigri Porto á BM Granollers með 6 mörk. Frábært að sjá Þorstein komast aftur af stað eftir erfið nárameiðsli.

Reynir Þór Stefánsson var allt í öllu hjá Melsungen í 37-33 tapi þeirra í heimsókn til HC Vardar. Reynir skoraði 12 mörk úr 19 skotum.

Þá unnu Flensburg 40-35 sigur á Montpellier í leik sem er miður eftirminnilegur fyrir þær sakir að áhorfandi lést á leiknum. Patrick Volz var markahæstur í liði Flensburg með 9 mörk og Valentin Porte og Leo Plantin skoruðu 5 mörk hvor fyrir Montpellier.

Fredericia unnu 33-34 sigur á RK Nexe. Tin Lucin var markahæstur í liði RK Nexe með 10 mörk og Kasper Young Andersen og Martin Bisgaard skoruðu 5 mörk hvor fyrir Fredericia.

Þá vann THW Kiel 32-37 sigur í heimsókn þeirra til Bidasoa Irun. Bence Imre var markahæstur í liði Kiel með 7 mörk og Piotr Mielczarski var atkvæðamestur fyrir heimamenn með 7 mörk.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top