Gæti átt yfir höfði sér bann þrátt fyrir að sleppa við refsingu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

H71 (HSF)

Høgn Klein Olsen leikmaður Kyndils gæti átt yfir höfði sér leikbann eftir atvik í bikarúrslitaleik milli H71 og Kyndils í Færeyjum um helgina. H71 vann bikarúrslitaleikinn 37–28. Það er kvf.fo sem greinir frá.

Aganefndin hjá Handknattleikssambandi Færeyja hefur fengið mál á sitt borð eftir bikarúrslitaleikinn í um helgina.

Undir lok leiksins missti Høgni Klein Olsen hjá Kyndli stjórn á skapi sínu. Í kjölfar þess sem Høgni fiskaði ruðning krækti hann fótunum utan um fætur leikmanns H71 sem var að reyna standa upp og hlaupa til baka. Í kjölfarið lét Høgni sig detta ofan á leikmann H71 með olnbogann á undan sér.

,,Í umræddri stöðu velja dómararnir að veita Høgna Klein Olsen áminningu fyrir atvikið og halda leik áfram. Viðkomandi dómarar og eftirlitsmenn hafa í dag farið yfir stöðuna og eru sammála um að beina því til aganefndarinnar að taka málið til meðferðar. Vísað er til §8:6b, sem veitir dómurum heimild til að tilkynna atvik sem getur talist „gróf óíþróttamannsleg framkoma“ samkvæmt §8:9d í alþjóðlegum leikreglum handknattleiks," segir í bréfinu sem dómararnir og dómaraeftirlitsmenn sendu HSF og aganefndinni í gær.

Dómararnir vilja meðal annars að aganefndin taki afstöðu til þess hvort atvikið hefði átt að vera refsað með rauðu og bláu spjaldi.

Høgni biðst afsökunar

Høgni Klein Olsen er reyndur handknattleiksmaður og ekki þekktur fyrir grófan leik. Hann sér eftir atvikinu og bíður nú eftir meðferð málsins og niðurstöðu segir í frétt KVF.

,,Ég tek fulla ábyrgð á stöðunni. Ég hef beðið leikmanninn og fjölskyldu hans afsökunar. Ég brást rangt við, og það var ekki í lagi. Ég er afar leiður yfir því sem gerðist. Nú virði ég þá meðferð sem málið fær," segir Høgni Klein Olsen við Kringvarpið í dag.

Andrass Thomsen, framkvæmdastjóri HSF, staðfestir að hafa móttekið bréfið sem hann hefur sent áfram til Aganefndarinnar, sem er sjálfstæð frá Handknattleikssambandinu.

Hægt er að sjá atvikið hér.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top