Vera Pálsdóttir (Þorgils G.)
Í kvöld mættust Fjölnir og Fram 2 í Egilshöll í Grill 66 deild kvenna. Það var jafnræði með liðunum fyrstu 5 mínúturnar en það sem eftir var af fyrri hálfleik réðu Fjölnis stelpur lögum og lofum. Eftir korter var staðan 11-7. Eftir 20 mínútur var staðan 14-8 og svo voru hálfleikstölur 21-15 fyrir heimakonum í Fjölni. Frábær fyrri hálfleikur hjá þeim. Í seinni hálfleik fór fljótlega allt að ganga á afturfótunum hjá heimakonum og Fram stelpur söxuðu afar hratt á Fjölni. Eftir 11 mínútna leik voru Fram stelpur búnar að jafna í 21-21. Næstu mínútur var gríðarlega mikið jafnræði með liðunum. Á 49 mínútu komust Fram yfir 25-26. Náðu þær alltaf að vera skrefi framar á lokamínútum lengst af nema rétt undir lokin þegar Fram stelpur komust yfir í fyrsta skipti í langan tíma. Voru þær 29-30 yfir þegar lítið var eftir en Hildur Sóley Káradóttir skoraði jöfnunarmark Fjölnis þegar örfáar sekúndur lifðu leiks. Hjá Fjölni var Berglind Benediktsdóttir með 8 mörk. Signý Pála varði 8 skot. Hjá Fram 2 var Katla Kristín með 14 mörk. Markvarslan skilaði þeim 10 boltum. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.