Haukur og félagar gætu tapað unnum leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukur Þrastarson (Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP)

Mannheim Morgen greinir frá því í gær að einn leikmaður Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni hafi tekið þátt í sigri liðsins gegn Lemgo í síðustu umferð án þess þó að hafa verið skráður á leikskýrslu.

Ef satt reynist má fastlega gera ráð fyrir því að Rhein Neckar Löwen verði dæmdur ósigur í leiknum. Það er Handbolti.is sem greinir frá.

Ekki kemur fram hver leikmaðurinn er, sem tók þátt í leiknum en var ekki skráður á leikskýrsluna en landsliðsmaðurinn, Haukur Þrastarson skoraði eitt mark í leiknum fyrir Löwen en liðið vann leikinn 32-30 eftir að hafa verið 13-17 undir í hálfleik.

Ekkert hefur enn heyrst frá stjórnendum þýsku deildarinnar né félaginu vegna málsins.

Tapi Rhein Neckar Löwen leiknum gæti það reynst liðinu dýrkeypt í baráttunni um Evrópudeildarsæti en Lemgo sem hefur verið spútnik lið deildarinnar hingað til færi upp að hlið Kiel í 4. sæti deildarinnar, stigi á eftir Flensburg og tveimur stigum á eftir Fuchse Berlín sem er í 2.sætinu með 36 stig. Magdeburg trónir á toppi deildarinnar með 40 stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top