Hüttenberg dæmdur ósigur þrátt fyrir sigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Select bolti (Sævar Jónasson)

Í þýsku 2. deildinni í handbolta hefur komið upp mál sem gæti haft mikil áhrif á fallbaráttuna. TV Hüttenberg vann á dögunum leik sinn gegn TuSEM Essen með þremur mörkum 37-34 sem er ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að TuSEM Essen hefur verið dæmdur sigur í leiknum.

Hüttenberg hefur tækifæri til að áfrýja ákvörðuninni innan tveggja vikna. Stigin færast því ekki til TuSEM Essen fyrr en sá tími er liðinn.

Ástæðan fyrir því að úrslitunum hefur verið breytt og TuSEM Essen dæmdur sigur er sú að Hüttenberg tefldi fram ungum leikmanni, Julius Gümbel í fjarveru tveggja leikmanna liðsins sem voru meiddir. Julius Gümbel var hinsvegar ekki löglegur í leiknum þrátt fyrir að vera með gildandi samning við félagið.

Frá og með 1. janúar á þessu ári tók í gildi ný regla í þýska handboltanum sem gerði fjölgunum skyldugt að skila inn undirritaðri yfirlýsingu frá öllum leikmönnum í deildinni þar sem leikmenn samþykkja að fylgja gildandi lyfjareglum. Þar samþykkja leikmenn einnig viðurlög ef brot koma upp og viðurkenna vald eftirlitsaðila til að framkvæma lyfjapróf.

Í reglunum er það skýrt tekið fram að leikmenn sem hafa annað hvort ekki undirritað undir þennan samning eða ef félög hafa ekki skilað inn samningunum eru taldir ólöglegir leikmenn og því ekki gjaldgengir í keppnisleikjum þýska handboltans.

Þrátt fyrir að Julius Gümbel hafi verið með gildandi leikmannasamning við Hüttenberg virðist vera sem svo að félagið hafi ekki verið búið að skila inn undirrituðum samning frá leikmanninum sem tengist nýju reglum deildarinnar. Gæti ástæðan verið sú að Gümbel er yfirleitt ekki hluti af aðalliði félagsins í þýsku 2.deildinni og þarna hafi félagið gleymt nýju reglunum og einungis látið leikmenn sem eru hluti af aðalliðinu skrifa undir nýja samninginn.

Þetta gæti reynst Essen vel í þeirri baráttu sem liðið er í, en liðið er í 16.sæti deildarinnar af 18 liðum en tvö neðstu lið deildarinnar falla í C-deildina. Essen er með fjögurra stiga forskot á Krefeld en gæti fengið þarna tvö stig í viðbót.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top