Snorri Steinn Guðjónsson (Sævar Jónasson)
Landsliðsþjálfari Íslands, Snorri Steinn Guðjónsson mætti í Rapyd stúdíó-ið á dögunum þar sem hann fór yfir Evrópumótið sem lauk í byrjun febrúar þar sem Ísland endaði í 4.sæti mótsins eftir tap gegn Króatíu í leiknum um bronsverðlaun. Í þættinum var farið yfir víðan völl og var Snorri Steinn meðal annars spurður spurninga frá lesendum og hlustendum Handkastsins. Þar var Snorri Steinn meðal annars spurður að því hver væri efnilegasti leikmaður Íslands í dag að hans mati. ,,Nú þurfum við að fara varlega," sagði Snorri Steinn sem gaf sér góðan tíma í að hugsa svarið... ,,Það er mjög vafasamt að nefna nöfn en mig langar að gera það...," bætti Snorri Steinn við áður en hann kom loks með svarið: ,,Sá sem er líklegastur til að nýtast íslenska landsliðinu á næstu árum er Patrekur Smári Arnarsson" Patrekur Smári er leikmaður ÍR í Olís-deild karla, fæddur árið 2008 og leikur með gríðarlega sterkur 2008 landsliði Íslands sem gerði sér lítið fyrir og vann Ólympíuhátíð æskunnar síðasta sumar í Skopje í Norður-Makedóníu. ,,Þarna kemur þarfagreining sem ég hef gert og þarna er ég að tala um HM á heimavelli, 2031. Ég er að tala um Ólympíuleikanna 2032, ég er í þannig pælingum þegar ég er að gera þetta. Ég var í kringum hann og 2008 landsliðið allt síðasta sumar og fór með þeim til Skopje. Ég sé skrokk sem ég hef ekki séð oft á Íslandi og hreyfanlegan. Hann minnir mig á Sigfús Sigurðsson á margan hátt, þetta er góður drengur, fyrirliði 2008 landsliðsins. Nú er hann að fá hrós sem hann verður að fara vel með og kunna að fara með. En ég held að hann geti þetta.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.