U19 karla (HSÍ)
Nú rétt í þessu var dregið í riðla fyrir Evrópumót U20 ára landsliðs drengja sem fram fer í Rúmeníu dagana 8.-19. júlí í sumar. Ísland er í C-riðli ásamt Spánverjum, Austurríki og Lettlandi en Spánverjar enduðu í 2.sæti á heimsmeistaramótinu síðasta sumar í þessum aldursflokki. Ísland tapaði í 8-liða úrslitum gegn Danmörku 32-30 en Danir enduðu í 3.sæti á mótinu. Ísland mætti Spáni í milliriðli keppninnar og vann ótrúlegan endurkomusigur 32-31 eftir að hafa verið 30-31 undir þegar mínúta var eftir af leiknum. Þjálfari U20 ára landsliðs Íslands er Ágúst Jóhannsson og honum til aðstoðar er Maksim Akbachev. Riðill A: Þýskaland Riðill B: Serbía Riðill C: Ísland Riðill D: Danmörk Riðill E: Svíþjóð Riðill F: Ungverjaland
Portúgal
Frakkland
Grikkland
Sviss
Færeyjar
Tyrkland
Spánn
Austurríki
Léttland
Noregur
Króatía
Norður-Makedónía
Rúmenía
Ísrael
Bosnía
Slóvenía
Tékkland
Pólland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.