Afreksíþróttamaður hugsar bara um dúkinn og að vinna leikina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stefán Arnarson (Sævar Jónasson)

Stefán Arnarson þjálfari Hauka er á leið í bikarúrslit með sitt lið á heimavelli annað árið í röð eftir sigur á Fram, 32-29 í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld.

,,Það er alltaf betra að vinna og þegar þú ert í þessari keppni þá viltu fara áfram. Við vorum ekki sáttar með varnarleikinn. Okkur fannst við vera frekar slakar þar en náðum að bæta það fyrstu 15 mínútur í seinni hálfleik og náðu smá forskoti," sagði Stefán meðal annars í viðtali við Handkastið eftir leikinn.

,,Við erum síðan fjórum mörkum yfir og einum manni fleiri en þær minnka muninn í tvö mörk. En síðan komu mikilvæg mörk og við sigldum þessum heim."

Mikil umræða hefur skapast um það að bæði karla og kvennalið Hauka sem eru í undanúrslitum bikarsins leika á heimavelli í bikarúrslitahelginni. Stefán Arnarson segist ekki pæla mikið í þessu.

,,Ég hef bæði unnið og tapað í bikarnum á Ásvöllum í bikarúrslitahelgi. Ég held að afreksíþróttamaður hugsi bara um dúkinn og að vinna leikina, ég held að hann sé ekki mikið að pæla í þessu."

Viðtalið við Stefán er hægt að sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top