Ásbjörn Friðriksson ((Kristinn Steinn Traustason)
Ásbjörn Friðriksson er nýjasti gestur Aukakastsins þar sem Stymmi Klippari og Kiddi Bjé fá til sín handboltafólk og gerir upp feril þess allt frá fyrstu æfingu. Ási eins og hann er oftast kallaður fer yfir uppvaxtarárin á Akureyri, árin í atvinnumennsku og hvort þau hefði getað verið fleiri og tíma sinn í FH. Skemmtileg ferðalög sem hann fór í með FH gegnum árin eins og þegar þeir flugu til Rússland eingöngu til að taka fimm víti í evrópukeppninni. Það er óhætt að mæla með hlustun á þennan frábæra þátt fyrir allt handboltaáhugafólk en Ási kemur með marga frábæra punkta sem ungir iðkendur ættu að tileinka sér sem vilja ná lagt í boltnaum. Hlusta má á þáttinn hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.