Treystir á Akureyringa búsetta á höfuðborgarsvæðinu
Egill Bjarni Friðjónsson

Undanúrslitin í Powerade-bikar kvenna fara fram á Ásvöllum í kvöld en KA/Þór mætir Val klukkan 20:15 í seinni leik kvöldsins. Haukar og Fram mætast klukkan 18:00 í fyrri viðureign undanúrslitanna.

Jónatan Magnússon þjálfari nýliða KA/Þórs í Olís-deild kvenna sendi skilaboð til stuðningsmanna sinna í gær þar sem hann hvetur Akureyringa búsetta á höfuðborgarsvæðinu að mæta og styðja við liðið gegn frábæru Valsliði. Jónatan segir verkefnið vera ærið en liðið mæti hinsvegar með kassann úti, fullar af baráttuanda og með trú á verkefnið.

Skilaboð Jónatans til stuðningsmanna KA/Þórs má sjá hér að neðan:

FINAL FOUR – VIÐ ERUM KLÁR

Gleðilega bikarveislu kæru stuðningsmenn .

Markmiðið okkar frá fyrsta degi var skýrt að komast í þessa helgi – og nú erum við á leiðinni !

Stelpurnar hafa lagt gríðarlega mikið á sig, æft af krafti, barist saman og unnið svo sannarlega fyrir því að vera hér í skemmtilegustu helgi tímabilsins.

Verkefnið framundan er ærið. Andstæðingarnir eru Íslands- og Evrópumeistarar. Valslið með frábæran hóp og öflugt þjálfarateymi. En við mætum með kassann úti, fullar af baráttuanda og trú á verkefnið.

Við vitum að allt er hægt þegar fólk hefur trú – og með geggjuðum stuðningi frá ykkur er ALLT mögulegt!

Við viljum sjá Ásvelli fyllast af KA/Þór litum, stemningu og látum.

Styðjum okkar lið og gerum næstu daga eftirminnilega.

Akureyringar búsettir á höfuðborgarsvæðinu við treystum á ykkar stuðning.

Mætum með alvöru norðlenska orku og skemmum okkur saman á pöllunum og munum að þetta verður að vera gaman.

Áfram Við

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top