Haukar í úrslit eftir sigur á Fram á heimavelli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Embla var markahæst. (Sævar Jónasson)

Ríkjandi bikarmeistarar Hauka hafa tryggt sér í úrslit Powerade-bikarsins eftir þriggja marka sigur á Fram í undanúrslitum í kvöld 32-19 staðan var jöfn 13-13 í hálfleik. Haukar höfðu einnig betur gegn Fram í úrslitum Powerade-bikarsins á síðustu leiktíð.

Jafnræði var með á liðunum allan tímann þangað til í stöðunni 20-20 þegar 20 mínútur voru eftir en þá kom fjögurra marka kafli hjá Haukum sem breyttu stöðunni í 24-20. Fram náði aldrei að jafna eftir það og sigldu Haukar sigrinum í höfn.

Hvorugt liðanna náði upp góðum varnarleik í leiknum og eftir fína byrjun markvarðanna í fyrri hálfleik þá var lítið um markvörslu um miðbik seinni hálfleiks.

Embla Steindórsdóttir var markahæst í liði Hauka með átta mörk og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir kom næst með sjö mörk. Sara Sif Jónsdóttir varði 12 skot í marki Hauka og var með rúmlega 31% markvörslu.

Hjá Fram var Ásdís Guðmundsdóttir með sjö mörk í liði Fram og Alfa Brá Hagalín skoraði sjö mörk. Hulda Dagsdóttir og Harpa María Friðgeirsdóttir komu næstar með fjögur mörk. Ethel Gyða Bjarnason varði 11 skot í marki Fram, með 30% markvörslu og Arna Sif Jónsdóttir varði eitt skot.

Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn klukkan 15:30 en mótherjar Hauka verða annað hvort Valur eða KA/Þór sem mætast á Ásvöllum í kvöld klukkan 20:15.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top