Þórey Anna var markahæst. (Egill Bjarni Friðjónsson)
Valur vann í kvöld sjö marka sigur á KA/Þór í seinni undanúrslitaleik Powerade-bikarsins, 29-22 en Valur leiddi í hálfleik með þremur mörkum 16-13. Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst á vellinum með átta mörk og Lovísa Thompson skoraði sex. Hjá KA/Þór skoruðu Tinna Valgerður Gísladóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir og Susanne Pettersen allar fjögur mörk. Jafnræði var með á liðunum í fyrri hálfleik en Valur náði forskoti rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. KA/Þór hóf seinni hálfleikinn betur og skoruðu fyrstu tvö mörkin en í stöðunni 18-16 fór KA/Þór illa með gullið tækifæri manni fleiri og tapaði boltanum tvívegis og Valsstelpur nýttu sér það. Skyndilega var Valur komið fimm mörkum yfir 21-16. Sóknarleikur KA/Þórs gekk illa í seinni hálfleik á meðan vörn Vals þéttist og áttu norðanstelpur í erfiðleikum með að skora mörk. Sjö marka sigur Vals staðreynd og ljóst að þær mæta Haukum í úrslitaleiknum á laugardaginn en Haukar höfðu betur gegn Fram fyrr í kvöld. Hafdís Renötudóttir fann sig ekki í leiknum í kvöld og varði einungis tíu skot en Bernadett Leiner í marki KA/Þórs varði níu skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.