Fyrri hálfleikurinn frábær hjá okkur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jónatan Magnússon KA/Þór (Eyjólfur Garðarsson)

Jónatan Magnússon þjálfari KA/Þórs þurfti að sætta sig við sjö marka tap gegn Val í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld, 29-22 eftir að hafa verið 16-13 undir í hálfleik.

KA/Þór minnkaði muninn niður í eitt mark í seinni hálfleik en Valsstelpur reyndust sterkari aðilinn þegar leið á leikinn.

,,Það er alltaf vonbrigði að tapa, maður vill vinna og við vissum að með sigri værum við að fara í skemmtilegt verkefni á laugardaginn en mér fannst sérstaklega í fyrri hálfleik vera frábær hjá okkur. Við vorum óheppnar og vorum að skjóta í stöng og slá sem hefði getað verið inni og þá hefðum við verið ennþá nær þeim og jafnvel yfir í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var ekki eins góður og vörnin þéttist hjá þeim. Við vissum að við þyrftum að eiga toppleik og við vorum nálægt því," sagði Jónatan og hélt áfram.

,,Ég er mjög stoltur af liðinu og mér fannst við mjög flottar. Það geislaði af okkur krafturinn og leikgleðin. Ég er ánægðastur með það," sagði Jónatan meðal annars í viðtalinu við Handkastið eftir leik.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top