Gagnrýnir að bikarúrslitin fari fram á Ásvöllum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Einar Ingi Hrafnsson Ingvar Örn Ákason (Sævar Jónsson

Einar Ingi Hrafnsson er einn helsti talsmaður þess að bikarúrslitahelgin í handboltanum fari ekki fram á Ásvöllum. Í fyrra lét hann skoðun sína í ljós eftir bikarúrslitin þar sem kvennalið Hauka varð bikarmeistari á heimavelli eftir sigur á Fram í úrslitum.

Nú er framundan undanúrslit í Powerade-bikarnum þar sem Haukar eiga lið bæði í karla og kvennaflokki. Einar Ingi fékk tíma í Handboltahöllinni til að segja sína skoðun enn og aftur í fjölmiðlum en Handkastið hefur ekki heyrt neinn annan aðila innan hreyfingarinnar kvarta jafn mikið yfir þessu og Einar Inga.

,,Ég hef sjálfur talað gegn þessu að við séum að halda bikarúrslitin á Ásvöllum þar sem Haukar eru og bjóða upp á þetta ójafnvægi sem myndast að Haukar geta verið í sínum klefa og gengur að venjulegri upplifun á heimavelli, mætandi í leikinn. Þetta getur alveg hjálpað þér, við sáum kvennalið Hauka vinna á heimavelli á síðustu leiktíð. Það eru kostir við þetta fyrir félagið en mér finnst þetta vera óþarfi," sagði Einar Ingi sem verður gestur í Handkastinu á föstudagsmorgun þegar Handkastið gerir upp undanúrslitin og þar verður Einar Ingi spurður enn og aftur út í hans skoðun á þessu og þar verður hann krafinn betri svara heldur en þau svör sem hann kom með í Handboltahöllinni.

,,Ef við getum ekki verið í Laugardalshöll eins og við eigum að geta verið þá finnst mér að við þurfum að breyta fyrirkomulaginu í sama far og þetta var í gamla daga. Þar sem undanúrslitin eru á föstudegi og úrslitin á laugardegi eða sunnudegi. Þannig við gerum jafnvægið þannig og yngri flokkarnir geta þá verið á Ásvöllum eða þá að fara í Smárann og skipta við körfuboltann. Karfan gæti þá verið upp í Fram þar sem er enginn körfubolti og handboltinn í Smáranum hjá Breiðablik," sagði Einar Ingi og bætti við:

,,Mér finnst ójafnvægi að við séum að búa til tekjuviðburð fyrir lið í deildinni eins og Final 4."

Handkastið bendir Einari Inga á að ef úrslitahelgi körfuboltans eigi að fara fram í Úlfarsárdalnum heimavelli Fram þá hlýtur það að vera jafn mikil tekjuöflun fyrir Fram eins og fyrir Hauka að halda Final 4 í handboltanum.

Ásbjörn Friðriksson tók hinsvegar undir orð Einars Inga en benti á að karlalið Hauka hefur tapað þremur heimaleikjum í röð og segir að þetta sé mögulega allt í lagi fyrir FH-ingana sem mæta Haukum í undanúrslitum annað kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top