Haraldur Þorvarðarson (Sævar Jónasson)
Farið var yfir sannfærandi sigur ÍR gegn Fram á útivelli í 18.umferð Olís-deildar kvenna í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ÍR hefndi þar með fyrir tapið gegn Fram í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins á dögunum sem fór fram á sama velli fyrir skemmstu. ÍR hafði betur í deildarleiknum á laugardaginn síðastliðinn, 26-34 þar sem Matthildur Lilja Jónsdóttir og Sara Dögg Hjaltadóttir fóru á kostum í liði ÍR. Það gekk hinsvegar lítið upp í sóknarleik Fram í leiknum og tapaði liðið 19 boltum í leiknum. ,,Haraldur Þorvarðarson þjálfari Fram hlýtur að hafa fengið martröð eftir þennan leik, eftir 19 tapaða bolta," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar. ,,Það var einhver forföll í liði Fram og Halli nefndi það í viðtali fyrir leik. En þá vill maður að liðið fókusi á að passa boltann en það var alls ekki þannig. Fram kastar þessum leik frá sér með einhverja bull tapaða bolta. Þær tapa 19 boltum í leiknum sem á ekki að sjást og mikið af byrjendamistökum aftur og aftur sem ÍR-ingar voru að stela." Fram verður í eldlínunni í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld klukkan 18:00 þegar liðið mætir Haukum. Fram hefur tapað tveimur leikjum í röð illa í Olís-deild kvenna, bæði gegn ÍR og síðan gegn Haukum og þurfa því að spila töluvert betur í leiknum í kvöld ætli þær sér sigur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.