Gidsel hefur jafnað sig af smávægilegum meiðslum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mathias Gidsel - Fuchse Berlín (Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Danski landsliðsmaðurinn og leikmaður Fuchse Berlín hefur jafnað sig á smávægilegum meiðslum og ætti að geta leikið með liðinu gegn Kielce í Meistaradeildinni á morgun að sögn Nicolej Krickau þjálfara liðsins.

Fuchse Berlín hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitunum þrátt fyrir að enn séu þrjár umferðir eftir af riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir það mun Berlínarliðið sem lenti í 2.sæti í Meistaradeildinni í fyrra ekki gefa neitt eftir í leiknum á morgun gen pólska liðinu.

,,Við erum ekki undir pressu til að ná úrslitum en við viljum vinna alla leiki, þar á meðal leikinn á fimmtudaginn,“ sagði Krickau.

Það er ekki ætlunin að hvíla lykilmenn liðsins í leiknum þrátt fyrir mikið leikjaálag. Mathias Gidsel meiddist lítillega í síðustu viku þegar sauma þurfti tvö spor eftir að sár myndaðist á milli tveggja fingra hans.

,,Saumarnir hafa verið fjarlægðir og þetta ætti ekki að hafa áhrif á hann," sagði Krickau.

12.umferðin í Meistaradeild Evrópu hefst í dag með fjórum leikjum og henni lýkur síðan á morgun með öðrum fjórum leikjum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top