Lægsti stuðullinn á Val og Hauka í bikarnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Magnússon (Sævar Jónasson)

Erlendi veðbankinn, Coolbet telur líklegast að Haukar verði bikarmeistarar í karlaflokki og Valur í kvennaflokki ef marka má stuðlana sem veðbankinn býður á síðu sinni.

Undanúrslit Powerade-bikars kvenna fer fram í kvöld með tveimur leikjum og karlarnir eiga síðan sviðið annað kvöld. Leikið er á Ásvöllum í Hafnarfirði en úrslitaleikirnir fara fram á laugardaginn. Allir leikirnir eru sýndir í beinni á RÚV.

Hjá konunum er talið það vera stórslys ef Valur verður ekki bikarmeistari en stuðullinn á Val er ekki nema 1.33 en liðið mætir nýliðum KA/Þórs í undanúrslitum í kvöld klukkan 20:15. Stuðullinn á KA/Þór er 20. Haukar og Fram mætast í hinum undanúrslitaleiknum en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar eftir sigur á Fram í úrslitaleik bikarsins í fyrra. Stuðullinn á Hauka er 6 á meðan stuðullinn á Fram er 6.5

Hjá körlunum er talið líklegast að sigurvegarnir úr leik FH og Hauka verði bikarmeistarar en liðin mætast annað kvöld klukkan 18:00. Stuðullinn á Hauka er lægstur eða 2.55 en 2.8 á FH.

KA eru á stuðlinum 5 á meðan ÍR sem er á botni Olís-deildarinnar er með stuðulinn 14. KA og ÍR mætast klukkan 20:15 annað kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top