Norðurlöndin: Sävehof með flottan útisigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Birgir Steinn Jónsson (BWM)

Í kvöld fór fram Íslendingaslagur í sænsku kvennadeildinni og Sävehof fór niður til Skáni og sótti góðan útisigur.

Birgir Steinn Jónsson átti fínan leik fyrir Sävehof sem vann flottan sigur á útivelli gegn Helsingborg í kvöld, 29-35. Birgir Steinn skoraði fimm mörk úr sjö skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk tvær brottvísanir að auki. Sävehof sitja í fjórða sæti deildarinnar og eru nánast öruggir í úrslitakeppnina.

Í kvennadeildinni fór fram Íslendingaslagur þegar Skara tók á móti Kristianstad. Leikurinn var lítið spennandi en heimakonur fóru illa með gestina. Lokatölur urðu 34-25 en Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki fyrir Skara á meðan Berta Rut Harðardóttir skoraði tvö mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar rétt eins og Lena Margrét.

Skara situr í þriðja sæti deildarinnar á meðan Kristianstad er í tíunda sætinu, stigi frá því að komast í úrslitakeppnina þegar þrjár umferðir eru eftir.

Úrslit kvöldsins:

Helsingborg 29-35 Sävehof

Skara 34-25 Kristianstad

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top