Slæmur 4-5 mínútna kafli gerði gæfumuninn
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haraldur Þorvarðarson (Sævar Jónasson)

Haraldur Þorvarðarson þjálfari Fram var að vonum svekktur eftir þriggja marka tap gegn Haukum í undanúrslitum Powerade-bikarsins á Ásvöllum í kvöld. Haukar höfðu betur 32-29 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 13-13.

Jafnræði var með á liðunum allt þar til í stöðunni 20-20 en þá kom slæmur kafli hjá Fram og Haukar skoruðu fjögur mörk í röð. Haraldur sagði í viðtali við Handkastið eftir leik að sá kafli hafi sennilega farið með leikinn.

,,Þetta er mjög svekkjandi. Mér fannst við spila þennan leik mjög vel og það voru einhver smá atriði sem skildu liðin að í dag. Það kom smá kafli í seinni hálfleik, 4-5 mínútur þar sem vörnin fór að hiksta og við fórum að tapa maður á mann stöðum og stigum ekki nægilega vel út í skytturnar eins og við vorum búnar að gera allan fyrri hálfleikinn. Heilt yfir var þetta frábær varnarleikur en þarna kom smá kafli sem þær náðu að nýta sér. Við vorum nálægt þessu en ég held að þessi kafli hafi gert gæfumuninn í dag," sagði Haraldur meðal annars í viðtalinu við Handkastið eftir leik.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top